Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 13. júní 2013 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Suso hugsar ekki um að fara frá Liverpool
Hinn bráðefnilegi Suso segist ætla að hafna öllum þeim tilboðum sem í sig berast til að vera áfram hjá Liverpool.

Þessi 19 ára gamli Spánverji lék 20 leiki á síðustu leiktíð og vakti mikla athygli fyrir áramót.

Þá hefur hann gegnt veigamiklu hlutverki í U-21 landsliði Spánverja sem er komið í undanúrslit Evrópumótsins sem fram fer í Ísrael þessa dagana.

Suso segist hinsvegar ekki hugsa um að koma sér í annað lið, heldur ætli hann sér að hjálpa liðinu í að verða betra.

,,Þetta ár hefur verið frábært. Hjá Liverpool var tímabilið gott og ég er mjög ánægður," sagði Suso.

,,Á næsta ári mun ég líklega verða áfram hjá Liverpool. Ég veit að það hafa borist nokkur tilboð, en ég ætla ekki að fara. Ég er ánægður hjá Liverpool."
Slapp
banner
banner
banner