Enska úrvalsdeildarfélagið Swansea hefur klippt á öll samskipti félagsins við umboðsmann þjálfarans Michael Laudrup.
Orðrómur hefur verið uppi undanfarið um að Laudrup sé ósáttur hjá Swansea eftir að honum var lofað litlu fé til leikmannakaupa í sumar.
Talið er að mikið ósætti sé í gangi á milli Huw Jenkins, stjórnarformanns Swansea, og Bayram Tutumlu, umboðsmann Laudrup. Jenkins telur Tutulum vera mannin á bakvið ósættisins sem hefur leitt til orðrómana um brotthvarf Laudrup.
Tutulum er sagður hafa reynt að stjórna og hafa áhrif á leikmannastefnu félagsins undanfarna mánuði. Meðal annars hefur hann farið á fundi, í umboði félagsins að eigin sögn, með leikmönnum sem hann vill fá til félagsins. Þá hefur hann einnig reynt að koma í veg fyrir kaup félagsins á leikmönnum sem eru ekki skjólstæðingar hans.




