Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 13. júní 2013 21:46
Þórður Már Sigfússon
Heimild: South Yorkshire Times 
Þjálfari Rotherham ræddi við leikmann á Íslandi
Hefur áhuga á að fá hann til félagsins
Sölvi Geir Ottesen er samningslaus og má ræða við félög.
Sölvi Geir Ottesen er samningslaus og má ræða við félög.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Steve Evans, þjálfari enska 2. deildarliðsins Rotherham United, var staddur hér á landi á dögunum m.a. í þeim tilgangi að skoða og ræða við leikmann sem hann hefur áhuga á að fá til félagsins.

Hann nýtti einnig tækifærið og fylgdist með landsleik Íslendinga og Slóvena síðastliðið föstudagskvöld en miðvörðurinn Kári Árnason er á mála hjá Rotherham.

Evans lætur ekki mikið uppi um þennan tiltekna leikmann og ekki er ljóst hvort hann sé á mála hjá liði í Pepsi-deildinni eða hvort hann hafi ferðast hingað til lands á vegum landsliðsins.

,,Ég hef þegar hitt þónokkra leikmenn sem ég hef áhuga á að fá til félagsins og rætt við þá augliti til auglitis,” sagði Evans í samtali við staðarblaðið South Yorkshire Times.

,,Þeim hefur einnig gefist tækifæri á að skoða sig um á þessum frábæra leikvangi okkar. Ef ég næ að krækja í þá leikmenn sem ég hef áhuga á, er ástæða til að hlakka til næsta tímabils."

Það er ljóst að margir áhugaverðir leikmenn prýða Pepsi-deildina um þessar mundir. Leikmenn sem gætu vel plumað sig í ensku 2. deildinni og má þar nefna Valsmanninn Rúnar Má Sigurjónsson, miðjumanninn knáa Björn Daníel Sverrisson hjá FH og Mývetninginn Baldur Sigurðsson sem hefur farið hamförum með KR-ingum það sem af er keppnistímabilinu.

Hvað landsliðsmenn á lausu varðar þá er Sölvi Geir Ottesen nú frjálst að ræða við önnur félög eftir brotthvarf hans frá danska meistaraliðinu FC Kaupmannahöfn.
Slapp
banner
banner