Leicester hefur hafnað þriðja tilboði Hull City í danska markvörðinn Kasper Smeichel.
Samkvæmt heimildum Sky Sports hljómaði nýjasta tilboðið upp á 2 milljónir punda, auk þess sem Hull bauð Leicester leikmann í skiptum.
Samkvæmt heimildum Sky Sports hljómaði nýjasta tilboðið upp á 2 milljónir punda, auk þess sem Hull bauð Leicester leikmann í skiptum.
Ljóst er að Steve Bruce, stjóri Hull, vill styrkja markvarðastöðu Hull fyrir átökin í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð og hefur hann gert Schmeichel að sínu aðalskotmarki fyrir sumarið.
Schmeichel hefur verið hjá Leicester frá árinu 2011 og á einungis eitt ár eftir af samningi sínum. Því er ljóst að það mun á stjórnarmenn félagsins ef hærra tilboð berst í Danann.


