Ricardo Mannetti er sönnun þess að þeir sem spila Football Manager geta vel látið sig dreyma. Mannetti fékk mikinn áhuga á þjálfun í gegnum þennan vinsæla tölvuleik og er í dag landsliðsþjálfari Namibíu.
Mannetti lék á sínum tíma 55 landsleiki fyrir Namibíu en þegar hann lagði skóna á hilluna hafði hann skyndilega mikinn frítíma. Byrjaði hann þá að spila Football Manager.
„Þessi tölvuleikur náði að fanga ímyndunarafl mitt. Mér gekk gríðarlega vel og fólk fór að tala um að ég yrði góður þjálfari," segir Mannetti.
Hann ákvað að slá til þegar honum bauðst að þjálfa uppeldisfélag sitt sem hafði naumlega bjargað sér frá falli á liðnu tímabili. Á fyrsta tímabili sínu vann hann bikarinn með liðinu og hafnaði í öðru sæti í bikarnum.
Hann var þá ráðinn þjálfari U21-landsliðs Namibíu og aðstoðarmaður A-landsliðsþjálfarans Roger Palmgren. Í upphafi mánaðarins sagði Palmgren starfi sínu lausu eftir að hafa orðið fyrir hótunum og var Mannetti ráðinn í hans stað.




