Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. júní 2018 10:15
Arnar Daði Arnarsson
Banega kominn á fullt eftir meiðsli - Klár á laugardaginn
Mynd: Getty Images
Argentíska landsliðið er mætt til Rússlands og eru í fullum undirbúningi fyrir fyrsta leik á Heimsmeistaramótinu sem er einmitt gegn Íslandi í Moskvu á laugardaginn.

Ever Banega leikmaður Sevilla á Spáni hefur verið að glíma við meiðsli á kálfa að undanförnu.

Það eru þó jákvæðar fréttir fyrir Argentínumenn að hann tók fullan þátt á æfingu liðsins í Bronnitsy í dag, en þar æfir Argentína á meðan á HM stendur.

Argentínumenn hafa verið óheppnir með meiðsli í aðdraganda HM en markvörðurinn, Sergio Romero og miðjumaðurinn, Manuel Lanzini eru fjarri góðu gamni á HM vegna meiðsla.

Athugasemdir
banner
banner
banner