Magni laut í lægra haldi í Norðanslag við Þórsara á Grenivíkur-velli í kvöld. Páll Viðar Gíslason þjálfari Magnamanna sagði að þetta væri þrátt fyrir það einn heilsteyptasti leikur liðsins hingað til.
„Við spiluðum okkar heilsteyptasta leik í dag held ég, mér fannst við þéttir og mjög flottir og sýndum hvað býr í liðinu. Ég held að við getum veitt öllum liðum í þessari deild alvöru leik og ef við leggjum okkur fram eins og í dag held ég að stigin fari að koma."
Agnar Darri Sverrisson leikmaður Magna lét reka sig útaf beint eftir markið hjá Magna og Þór náði eftir það að skora tvö mörk og vinna leikinn.
„Ef hann gefur honum seinna gula og rautt spjald verðum við að bregðast við og spila út leikinn manni færri, við höfum spilað tveimur færri og það gekk vel. Nú þurftu tvö mörk eftir föst leikatriði að skilja að og auðvitað er það hundfúlt. Það fá 4-5 gult fyrir að sýna baráttu fyrir liðið.

Athugasemdir