sun 13. ágúst 2017 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Líkleg byrjunarlið Man Utd og West Ham
Mynd: Guardian
Fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lýkur í dag með leik Manchester United og West Ham, flautað verður til leiks á Old Trafford klukkan 15:00.

Nokkrir eru meiddir hjá liðunum en hjá Manchester United eru þeir Marcos Rojo, Luke Shaw, Ashley Young og James Wilson frá, en hjá West Ham eru þeir Cheikhou Kouyate, Diafra Sakho, Andy Carroll og Michail Antonio frá vegna meiðsla.

Búist er við því að Javier Hernández byrji gegn Manchester United í dag en hann var á mála hjá liðinu á árunum 2010-2015.

Það er spurning hverja Mourinho velur í miðvarðarstöðurnar en þeir Lindelof og Smalling byrjuðu í Ofurleiknum gegn Real Madrid síðastliðinn þriðjudag, það er því spurning hvort að þeir Eric Bailly og Phil Jones komi inn í liðið í dag.






Athugasemdir
banner
banner
banner
banner