OZ býður upp á viðureign Juventus og Lazio í ítalska ofurbikarnum í beinni útsendingu á https://www.oz.com/italian-super-cup klukkan 18:45 í kvöld.
Áhorfendur geta valið á milli nokkurra lýsenda frá hinum ýmsu löndum en Jón Páll Pálmason mun lýsa leiknum á íslensku. OZ er með sýningarréttinn á leiknum á Norðurlöndum, Asíu og Suður-Evrópu.
Þjónustan verður í boði inn á https://www.oz.com/italian-super-cup. Hægt er að horfa á leikinn í Apple TV og í OZ appinu í síma eða spjaldtölvu en einungis er hægt að velja á milli lýsenda ef horft er í tölvu. Aðgangur að leiknum kostar 890 kr.
Athugasemdir