Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 13. ágúst 2017 09:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Tony Pulis vill fá fleiri leikmenn
Tony Pulis ætlar að styrkja leikmannahópinn áður en glugginn lokar.
Tony Pulis ætlar að styrkja leikmannahópinn áður en glugginn lokar.
Mynd: Getty Images
Tony Pulis og félagar í West Brom hófu tímabilið á sigri í gær en þeir fengu þá Bournemouth í heimsókn.

Hann sagði eftir leikinn að West Brom væri í leit að fleiri leikmönnum.

„Við þurfum fleiri leikmenn, góða leikmenn. Allir hjá félaginu eru að bíða eftir því að þeir komi. Við þurfum að bæta við okkur til að gefa okkur betri möguleika á því að gera vel."

Þeir Jay Rodriguez, Yuning Zhang og Ahmed Hegazi eru þeir leikmenn sem hafa gengið til liðs við West Brom þetta sumarið.

Ahmed Hegazi sem kom á láni, skoraði einmitt sigurmark West Brom gegn Bournemouth í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner