Fulham 2 - 1 Hull City
1-0 Floyd Ayité ('42 )
1-1 Jarrod Bowen ('53 )
2-1 Stefan Johansen ('62 )
1-0 Floyd Ayité ('42 )
1-1 Jarrod Bowen ('53 )
2-1 Stefan Johansen ('62 )
Fulham fékk Hull City í heimsókn í miðjumoðinu í ensku Championship-deildinni þetta miðvikudagskvöldið.
Heimamenn í Fulham komust yfir þegar stutt var eftir af fyrri hálfleiknum, en Hull var ekki lengi að jafna. Stuttu eftir að dómarinn flautaði seinni hálfleikinn á voru þeir búnir að gera það.
Það voru þó leikmenn Fulham sem fóru glaðari heim. Norðmaðurinn Stefan Johansen skoraði sigurmarkið á 62. mínútu.
Fulham er núna með 10 stig í 13. sæti og Hull, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, er í 16. sæti með sjö stig.
Athugasemdir