„Þetta er risa sigur fyrir okkur," sagði markahrókurinn Harry Kane eftir 3-1 sigur á Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld.
„Við verðum að nýta okkur þessi kvöld á Wembley. Á síðasta tímabili reyndust heimaleikirnir okkur erfiðir."
„Við sýndum reynslu okkar með þessari frammistöðu í kvöld."
Tottenham féll úr leik í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á síðasta tímabili. Þeir ætla ekki að gera það aftur núna.
„Þú þarft að vera klókur í Meistaradeildinni. Við nýttum þær skyndisóknir sem við fengum," sagði Kane sem skoraði tvö.
Athugasemdir