„Við erum spenntar að byrja nýja undankeppni og þetta leggst vel í okkur," sagði Sara Björk Gunnarsdóttir við Fótbolta.net í dag.
Sara og liðsfélagar hennar í íslenska landsliðinu eru að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM á Laugardalsvelli á mánudag.
Sara og liðsfélagar hennar í íslenska landsliðinu eru að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Færeyjum í undankeppni HM á Laugardalsvelli á mánudag.
„Á pappírnum eigum við að vinna en við þurfum að eiga toppleik. Við þurfum að gera það líka fyrir okkur sjálfar, til að sýna hvað við erum góðar."
Þýskaland, Tékkland og Slóvenía eru einnig með Íslandi og Þýskalandi í riðli.
„Við erum spenntar að byrja nýja keppni. Riðillinn er sterkur en við erum bjartsýnar," sagði Sara.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir