mán 13. október 2014 22:48
Magnús Már Einarsson
15 ára Norðmaður sló met Sigga Jóns
Siggi Jóns átti metið í 30 ár.
Siggi Jóns átti metið í 30 ár.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Martin Ödegaard varð í kvöld yngsti leikmaðurinn í sögunni til að spila í undankeppni EM.

Ödegaard verður 16 ára í desember en hann kom inn á sem varamaður í 2-1 sigri Norðmanna gegn Búlgaríu í kvöld.

Sigurður Jónsson átti fyrra metið en hann var 16 ára og 251 daga þegar hann spilaði með íslenska landsliðinu í undankeppni EM 1984.

Ödegaard leikur með Strømsgodset í Noregi en öll helstu stórlið Evrópu hafa sýnt honum áhuga.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner