Theódór Elmar Bjarnason lék eins og engill í hægri bakverðinum í 2-0 sigri Íslands á Hollendingum í undankeppni EM.
,,Það gekk allt upp. Við vorum kannski ekki með rosalega mikla orku þegar við fengum boltann og þegar við ætluðum að gera eitthvað fram á við. Holland skapar sér eitt færi gegn Íslandi og við vinnum sanngjarnan 2-0 sigur," sagði Elmar sem er skiljanlega ánægður með byrjun liðsins í riðlakeppninni og leiðist ekki að telja afraksturinn upp.

,,Níu stig og 8-0 í markatölu. Þetta er í okkar höndum núna og draumurinn er skyndilega kominn aðeins nær og við gerum allt eins og við getum til að halda áfram á þessari sigurbraut."
Elmar þakkar öllum starfsmönnum landsliðsins fyrir sín störf í aðdraganda leiksins og segir þá vera vinna gott starf.
,,Ég hefði aldrei náð að spila þennan leik nema fyrir Stefán sjúkraþjálfara sem er búinn að vera vinna í mér í 8-9 klukkutíma. Ég á honum allt að þakka fyrir að fá að spila þennan leik," sagði Elmar sem var með vinstri vængmenn Hollendinga í rassvasanum allan leikinn.
,,Ég tók þá útúr vasanum áðan, þannig þeir eru farnir," sagði Elmar að lokum.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir