Emil Hallfreðsson lék eins og konungur á hægri kant íslenska liðsins í kvöld. Byrjun leiksins einkenndist hreinlega af hans dugnað, vinnusemi og útsjónarsemi. Íslenska liðið vann 2-0 sigur á því Hollenska í kvöld, sem verða að teljast stórfengleg úrslit í ljósi þess að þetta Hollenska lið er bronsverðlaunaliðið frá ný afstöðnu Heimsmeistaramóti í Brasilíu.
,,Þetta var bara góður leikur, liðheildin hefur bara tekið þennan sigur. Allt liðið var á tánum og allir gáfu 120% í þetta og þetta gekk upp með okkur í dag og þeir fundu engar lausnir til að brjóta okkur niður," sagði Emil í samtali við Fótbolta.net.
Emil átti stórkostlegan leik fyrir Ísland, en þó var hann nokkuð hógvær þegar hann var spurður út í sinn eigin leik.
,,Mér bara líður vel, ég spila alltaf með mínu félagsliði. Ég er alltaf að reyna að vinna í mínum leik og er alltaf að gera mitt besta."
Frábær byrjun íslenska liðsins kemur Emil smá á óvart.
,,Ég get alveg viðurkennt að ég bjóst ekki við 8-0 markatölu og 9 stig en við bara njótum mómentsins og bíðum spenntir eftir næsta leik."
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.
Athugasemdir