Heimild: RÚV
Stuðningsmenn Hollendinga sem fylgdu sínum mönnum til Íslands fóru í göngu úr miðbæ Reykjavíkur að Laugardalsvelli fyrir leikinn í kvöld.
Stuðningsmennirnir, sem voru ölvaðir, þurftu að pissa á leið sinni á Laugardalsvöllinn og nýttu tækifærið þegar þeir voru á gangi framhjá lögreglustöðinni við Hlemm.
Stuðningsmennirnir, sem voru ölvaðir, þurftu að pissa á leið sinni á Laugardalsvöllinn og nýttu tækifærið þegar þeir voru á gangi framhjá lögreglustöðinni við Hlemm.
Stuðningsmennirnir gerðu sér lítið fyrir og pissuðu á lögreglustöðina sjálfa eins og má sjá á meðfylgjandi mynd sem Hólmfríður Arnardóttir tók í dag og var birt á vefsíðu RÚV.
Frá lögreglustöðinni fengu Hollendingarnir lögreglufylgd um Borgartún og alla leið í Laugardalinn.
Athugasemdir