,,Ég þekki nánast hvern einasta leikmann í þessu liði þannig það verður extra gaman fyrir mig að koma á æfingu á fimmtudaginn," sagði Kolbeinn Sigþórsson, framherji Ajax og íslenska landsliðsins, skælbrosandi eftir 2-0 sigur á Hollendingum í kvöld.
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í kvöld í sögulegasta leik Íslands frá upphafi en liðið var að mæta Hollendingum sem fengu bronsverðlaun á HM í sumar.
,,Að sjálfsögðu, þetta var frábær sigur og ég fer mjög ánægður heim," sagði Kolbeinn.
,,Varnarlega séð vorum við að hlaupa fyrir hvorn annan og spila sem lið, það skein í gegn og liðsheildin vann þennan sigur í dag, það er pottþétt."
,,Við vorum hættulegir þegar við fengum sóknirnar og nýttum okkar færi. Kannski hefði þetta verið stærra ef þetta hefði fallið enn meira með okkur."
,,Þetta er draumi líkast að byrja svona vel og vonandi getum við haldið svona áfram." sagði Kolbeinn.
Athugasemdir