Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 13. október 2015 14:05
Elvar Geir Magnússon
Segir að Klopp hafi ekki verið fyrsti kostur Liverpool
Jurgen Klopp á æfingasvæði Liverpool.
Jurgen Klopp á æfingasvæði Liverpool.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp var ekki fyrsti kostur Liverpool til að verða knattspyrnustjóri í staðinn fyrir Brendan Rodgers. Þetta segir Harry Redknapp.

Redknapp segir að Carlo Ancelotti hafi verið efstur á blaði en Ítalinn hafi hafnað tilboði Liverpool.

Ancelotti er atvinnulaus eftir að hafa yfirgefið Real Madrid í sumar og sagði nýlega að hann væri spenntur fyrir því að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina.

Redknapp segist hafa öruggar heimildir fyrir því að Liverpool hafi haft samband við Ancelotti á undan Klopp.

Redknapp telur að þó Klopp hafi verið kostur tvö sé hann mjög vænlegur kostur fyrir Liverpool.

„Ég er hrifinn af Klopp, það er góð ráðning. Hann virkar mjög ástríðufullur og klár stjóri og er frábær viðbót í ensku úrvalsdeildina. Ég hlakka til að sjá Liverpool spila á næstu árum," segir Redknapp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner