Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. október 2017 18:30
Magnús Már Einarsson
Benítez um slagsmál á æfingu: Hef séð það verra
Það er allt í góðu standi!
Það er allt í góðu standi!
Mynd: Getty Images
Rafa Benítez, stjóri Newcastle, hefur gert lítið úr slagsmálum á æfingu hjá liðinu.

Jamaal Lascelles og Mo Diame lentu í slagsmálum í landsleikjahléinu og skilja þurfti þá í sundur.

„Ég hef séð það verra," sagði Benítez um atvikið á fréttamannafundi í dag.

„Þetta var eðlilegt. Þetta gerist stundum. Núna kaupa þeir hádegismat fyrir alla í hópnum."

Newcastle mætir Southampton á sunnudag en þar er Mauricio Pellegrino við stjórnvölinn. Pellegrino var leikmaður undir stjórn Benítez hjá bæði Valencia og Liverpool á sínum tíma.
Athugasemdir
banner
banner
banner