Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 13. október 2017 16:30
Magnús Már Einarsson
Kante frá keppni næstu vikurnar - Morata ekki með á morgun
Kante verður frá keppni fram í næsta mánuð.
Kante verður frá keppni fram í næsta mánuð.
Mynd: Getty Images
N'Golo Kante, miðjumaður Chelsea, verður frá keppni í að minnsta kosti þrjár vikur eftir að hafa tognað aftan í læri í 1-0 sigri Frakka á Búlgaríu um síðustu helgi.

Kante á eftir að fara í frekari rannsóknir en möguleiki er á að hann verði lengur frá keppni en þrjár vikur.

Alvaro Morata tognaði einnig aftan í læri í 1-0 sigri Chelsea á Manchester City í síðasta leik fyrir landsleikjahlé.

Morata verður ekki með gegn Crystal Palace á morgun en hann gæti náð leiknum gegn Roma í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

Danny Drinkwater er á góðri leið eftir kálfameiðsli en ennþá er þó bið eftir því að hann leiki sinn fyrsta leik með Chelsea. Í fjarveru Kante og Drinkwater á gætu ungu leikmennirnir Ethan Ampadu og Kyle Scott fengið sénsinn gegn Palace á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner