banner
   fös 13. október 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Daily Mail 
Moyes líklegastur til að taka við Skotum - Stóri Sam mögulegur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
David Moyes er talinn líklegasti arftaki Gordon Strachan hjá skoska landsliðinu.

Strachan sagði af sér eftir að hafa mistekist að komast Skotlandi á HM, en Skotar gerðu 2-2 jafntefli við Slóveníu á útivelli og misstu þannig af umspilssæti. Þetta er annað stórmótið í röð sem Skotar missa af undir stjórn Strachan.

„Við höfum átt frábærar stundir saman og ég mun alltaf eiga stórkostlegar minningar frá þessum tímum," sagði Strachan.

„Það sem ég sé mest eftir úr minni stjórnartíð er að hafa ekki komist á nægilega mörg stórmót."

Stóri Sam Allardyce er einnig talinn meðal líklegra arftaka, sem og Malky Mackay.
Athugasemdir
banner
banner