Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 13. október 2017 21:01
Elvar Geir Magnússon
Spánn: Hundleiðinlegur leikur í Barcelona
Mark var dæmt af Espanyol.
Mark var dæmt af Espanyol.
Mynd: Getty Images
Espanyol 0 - 0 Levante

Ekkert var skorað í fyrsta leik umferðarinnar í spænsku La Liga deildinni. Espanyol og Levante skiptu stigunum á milli sín í leiðinlegum leik í Barcelona.

Gerard Moreno kom boltanum í netið í leiknum og var Espanyol byrjað að fagna af krafti þegar dómarinn dæmdi markið af en það var umdeild ákvörðun.

Liðin sitja í 10. og 11. sæti deildarinnar en hér að neðan má sjá dagskrána í La Liga um helgina.

Laugardagur:
11:00 Athletic Bilbao - Sevilla
14:15 Getafe - Real Madrid (Stöð 2 Sport 3)
16:30 Alaves - Real Sociedad
18:45 Atletico Madrid - Barcelona (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
10:00 Eibar - Deportivo La Coruna
14:15 Girona - Villarreal
16:30 Malaga - Leganes
18:45 Real Betis - Valencia

Mánudagur:
19:00 Las Palmas - Celta Vigo
Athugasemdir
banner
banner
banner