Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. október 2017 20:31
Elvar Geir Magnússon
Þýskaland: Flautumark tryggði Stuttgart sigur gegn botnliðinu
Anastasios Donis fagnar marki sínu.
Anastasios Donis fagnar marki sínu.
Mynd: Getty Images
Stuttgart 2 - 1 Köln
1-0 Anastasios Donis ('38 )
1-1 Dominique Heintz ('77 )
2-1 Chadrac Akolo ('94 )

Það var mikil dramatík í leik kvöldsins í þýsku úrvalsdeildinni en Kongómaðurinn Chadrac Akolo tryggði Stuttgart sigur gegn Köln sem er aðeins með eitt stig á botni deildarinnar.

Fjórum mínútum var bætt við leikinn og það var einmitt á 94. mínútu sem Akolo skoraði flautusigurmark eftir glæsilegt einstaklingsframtak.

Grikkinn Anastasios Donis hafði skorað fyrra mark Stuttgart en liðið er í tíunda sæti af átján liðum deildarinnar.

Dominique Heintz skoraði fyrir Köln en liðið er í miklu basli.

Athugasemdir
banner
banner
banner