Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. desember 2017 20:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arteta felur áverkana með húfu
Arteta mætti með húfu í kvöld.
Arteta mætti með húfu í kvöld.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, einn af aðstoðarmönnum Pep Guardiola, hlaut ákverka eftir leik Manchester United og Manchester City á sunnudag.

Slagsmál brutust út í göngunum eftir grannaslaginn á Old Trafford. City vann leikinn 2-1 og fögnuðu leikmenn sigrinum með því að spila háværa tónlist inn í klefa.

Opið var inn í klefann þegar Jose Mourinho, stjóri Man Utd, labbaði framhjá á leið sinni í viðtöl. Mourinho kallaði eitthvað inn í klefa og í kjölfarið fóru hann og Ederson að rífast. Þá varð allt vitlaust og leikmenn beggja liða blönduðu sér í slaginn.

Mjólk var hellt yfir Mourinho og Arteta fékk skurð í andlitið eftir að plastflösku var kastað í hann.

Arteta hefur falið skurðinn vel undanfarna daga og alltaf haft húfu eða derhúfu á höfðinu þegar ljósmyndarar eru í grendinni.

Hann mætti með húfu á leik Manchester City og Swansea í kvöld eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.



Athugasemdir
banner
banner
banner