Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. desember 2017 19:38
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mourinho skammaði blaðamenn - „Berið þið enga virðingu fyrir Bournemouth?"
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, skammaði þá blaðamenn sem mættu á blaðamannafund hans í gær.

Blaðamannafundurinn átti að snúast um leikinn gegn Bournemouth sem hefst innan skamms. Hann snerist hins vegar að mestu um það sem gerðist eftir leikinn gegn Manchester City.

Sjá einnig:
England - Byrjunarlið: Shaw og McTominay koma inn

„Ykkur líkar þá ekki við Bournemouth," sagði Mourinho við blaðamennina þegar hann gekk af fundinum.

„Berið þið enga virðingu fyrir Bournemouth? Teljið þið ekki að þeir séu með lið sem getur komið á Old Trafford og staðið sig vel? Engin virðing fyrir Eddie Howe, engin virðing fyrir leikmönnunum."

Smelltu hér til að skoða myndband.
Athugasemdir
banner
banner
banner