Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 13. desember 2017 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fabinho ætlar sér að yfirgefa Mónakó
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Fabinho ætlar sér að yfirgefa Mónakó um leið og hann fær tækifæri til þess.

Hinn 24 ára gamli Fabinho var sterklega orðaður við burt frá Mónakó í sumar, en ekkert varð að því. Á meðan liðsfélagar hans komu sér í burtu varð hann eftir.

Hann vonast til þess að yfirgefa franska félagið næsta sumar.

„Ef allt er eðlilegt er þetta mitt síðasta tímabil hjá Mónakó," sagði Fabinho við fréttamenn.

„Eftir síðasta félagaskiptaglugga var erfitt að sætta sig við stöðuna. En ég hugsa ekki um þetta lengur."

„Ég held ég muni ekki fara í janúar. Ég hef ekki enn heyrt frá neinum öðrum félögum."
Athugasemdir
banner
banner
banner