Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 13. desember 2017 18:30
Elvar Geir Magnússon
Iniesta: Coutinho yrði mikilvæg viðbót
Coutinho í leik með Liverpool.
Coutinho í leik með Liverpool.
Mynd: Getty Images
Andrés Iniesta vill að Barcelona kaupi Philippe Coutinho frá Liverpool. Coutinho er efstur á óskalista spænska stórliðsins sem gerði þrjú tilboð í leikmanninn í síðasta sumarglugga. Öllum tilboðunum var hafnað af Liverpool.

Barcelona vill einnig fá varnarmann og talið að kólumbíski landsliðsmaðurinn Yerry Mina verði keyptur frá Palmeiras.

„Ég tel að þeir báðir yrðu mikilvæg viðbót við hópinn. Ef félagið vill styrkja sig í þessum stöðum þá þurfa að koma leikmenn sem eru tilbúnir að standa pressuna hjá félagi eins og þessu. Þeir yrðu báðir stór kaup," segir Iniesta.

Barcelona horfir til Coutinho sem arftaka Iniesta til framtíðar.
Athugasemdir
banner
banner