mið 13. desember 2017 12:30
Elvar Geir Magnússon
Juventus vill fá Kovacic
Kovacic í landsleik með Króatíu á Íslandi.
Kovacic í landsleik með Króatíu á Íslandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Juventus hefur áhuga á tveimur leikmönnum Real Madrid; Dani Ceballos og Mateo Kovacic.

Juventus er ríkjandi Ítalíumeistari en situr sem stendur í þriðja sæti deildarinnar. Sagt er að félagið sé þegar byrjað að gera áætlanir um næsta tímabil.

Dani og Kovacic eru báðir ósáttir við takmarkaðan spiltíma á þessu tímabili.

Kovacic er fyrrum sóknarmiðjumaður Inter en hann hefur aðeins leikið samtals 71 mínútu.

Þessi 23 ára leikmaður er okkur Íslendingum vel kunnur enda landsliðsmaður Króatíu.

Dani er með 186 mínútur spilaðar í deildinni.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner