Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 13. desember 2017 22:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stóri Sam hissa á því hversu mörg mörk Everton fékk á sig
Mynd: Getty Images
„Ég er hissa á því hversu mörg mörk Everton fékk á sig áður en ég kom hingað," sagði Sam Allardyce eftir 1-0 sigur á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Everton hefur aðeins fengið eitt mark á sig síðan Allardyce tók við og liðið er á góðu róli undir hans stjórn.

„Við erum komnir með 22 stig og erum að komast í efri hlutann. Þetta kemur allt út frá sterkum varnarleik."

Sammi hefur ákveðið að fresta sérstakri jólagleði leikmanna Everton. Stóri Sam hugsar venjulega mikið um móralinn utan vallar en honum finnst ekki við hæfi að halda jólagleði á þessum tímapunkti.

„Það er búið að fresta jólagleðinni. Leikmennirnir fá ekki að njóta sín almennilega fyrr en eftir bikarleikinn 5. janúar."
Athugasemdir
banner
banner
banner