Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 13. desember 2017 15:52
Elvar Geir Magnússon
Þarf Iheanacho að skipta um vinnustað í janúar?
Iheanacho hefur ekki spilað heilan leik í deildinni síðan í september 2016.
Iheanacho hefur ekki spilað heilan leik í deildinni síðan í september 2016.
Mynd: Getty Images
Kelechi Iheanacho hefur bara byrjað tvo deildarleiki á þessu tímabili en Leicester keypti hann frá Manchester City á 25 milljónir punda síðasta sumar.

Iheanacho vakti mikla athygli þegar hann var að skapa sér nafn hjá City og var oft borinn saman við Marcus Rashford sem á sama tíma var að vekja athygli hjá grönnunum í United.

Þessi 21 árs sóknarleikmaður gæti þurft að færa sig um set í janúarglugganum því hann er ákveðinn í að spila fyrir landslið Nígeríu á HM í Rússlandi næsta sumar. Ísland er meðal mótherja nígeríska landsliðsins á mótinu.

„Hann er góður leikmaður og ef hann heldur áfram að bæta sig þá mun hann vinna sér inn sæti. Við erum með marga leikmenn í hans stöðu og samkeppnin er mikil," sagði Claude Puel, stjóri Leicester, í lok nóvember.

Síðan Puel sagði þetta hefur Iheanacho leikið núll mínútur. Hann var ekki í leikmannahópnum í sigrinum gegn Tottenham á dögunum.

Leicester hefur gengið vel að undanförnu og meðan það gengi heldur áfram verður sífellt erfiðara fyrir Iheanacho að brjóta sér leið í gegn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner