Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. janúar 2018 20:33
Arnar Geir Halldórsson
Berahino mætti sólarhring of snemma í leik
Í ruglinu
Í ruglinu
Mynd: Getty Images
Saido Berahino, framherji Stoke, virðist ekki fylgjast alltof vel með leikjadagskrá ensku úrvalsdeildarinnar.

Berahino hélt nefnilega að hann væri á leið í leik á Old Trafford í kvöld en hið rétta er að Stoke heimsækir Manchester United á morgun, mánudag, í lokaleik umferðarinnar.

Þessi 24 ára gamli framherji mætti á æfingasvæði Stoke í dag í ferðagalla félagsins og klár í ferðalag til Manchester borgar.

Liðsfélagi hans, Kurt Zouma, benti Berahino á að leikurinn væri á morgun og framundan væri æfing hjá þeim félögum.




Athugasemdir
banner
banner