Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 14. janúar 2018 15:02
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Liverpool og Man City: Lovren í stað Van Dijk
Van Dijk er fjarverandi.
Van Dijk er fjarverandi.
Mynd: Liverpool FC
Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni er á Anfield og hefst eftir tæpan klukkutíma. Þá mætir Liverpool toppliði Manchester City.

Liverpool seldi Philippe Coutinho til Barcelona um síðustu helgi. Í stað Coutinho í byrjunarliðinu í dag er Alex Oxlade-Chamberlain. Salah, Mane og Firmino byrja allir.

Virgil van Dijk er að glíma við meiðsli og getur ekki tekið þátt í sínum fyrsta deildarleik fyrir Liverpool í dag. Dejan Lovren fyllir í skarð Van Dijk í hjarta varnarinnar í dag.

Athygli vekur að Loris Karius er í markinu hjá Liverpool.

City byrjar með mjög sterkt lið. Otamendi og Stones eru í hjarta varnarinnar og Sterling, De Bruyne Sane og Aguero sjá um sóknarleikinn á Anfield í dag.

Byrjunarlið Liverpool: Karius, Gomez, Lovren, Matip, Robertson, Wijnaldum, Can, Oxlade-Chamberlain, Salah, Mane, Firmino.
(Varamenn: Mignolet, Milner, Klavan, Lallana, Ings, Solanke, Alexander-Arnold)

Byrjunarlið Man City: Ederson, Walker, Otamendi, Stokes, Delph, Fernandinho, Gundogan, Sterling, De Bruyne, Sane, Aguero.
(Varamenn: Bravo, Danilo, Mangala, D.Silva, B.Silva, Zinchenko, Diaz)


Athugasemdir
banner
banner