banner
   sun 14. janúar 2018 08:30
Ingólfur Stefánsson
Rio Ferdinand segir Sanchez að velja City
Mynd: Getty Images
Rio Ferdinand fyrrum leikmaður Manchester United segir að það væri gáfulegra fyrir Alexis Sanchez að velja Manchester City frekar en United.

Manchester liðin leiða kapphlaupið um Sanches en ansi ólíklegt er að hann verði áfram hjá Arsenal.

City hafa verið á eftir Sanchez frá því síðasta sumar en United lögðu fram 25 milljón punda tilboð í leikmanninn á dögunum.

„Ég ætla að vera hreinskilinn, ef hann hefur val á milli þessara liða, myndi ég sem fótboltamaður sem vill vinna titla frekar velja Manchester City," sagði Ferdinand við BTsport.

„Þeir eru á toppi deildarinnar og munu vinna hana á þessu tímabili. Þeir eru í Meistaradeildinni og eru á leið í úrslit í deildabikarnum. Hann hefur fleiri tækifæri þar til að vinna titla."
Athugasemdir
banner
banner
banner