Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 14. janúar 2018 22:02
Arnar Geir Halldórsson
Ryan Giggs tekur við Wales á morgun
Ryan Giggs
Ryan Giggs
Mynd: Getty Images
Manchester United goðsögnin Ryan Giggs verður næsti landsliðsþjálfari Wales samkvæmt heimildum SkySports.

Fyrr í kvöld bárust fréttir þess efnis að welska knattspyrnusambandið myndi tilkynna um ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara á morgun og voru nöfn Craig Bellamy og Giggs nefnd.

Nú kveðst SkySports hafa öruggar heimildir fyrir því að Giggs hafi orðið fyrir valinu og mun hann undirrita fjögurra ára samning á morgun.

Giggs tekur við starfinu af Chris Coleman sem hætti til að taka við Sunderland undir lok síðasta árs.


Athugasemdir
banner
banner
banner