Franski blaðamaðurinn Romain Collet-Gaudin, sem hefur starfað fyrir Canal + og Eurosport, birtir í dag mynd á Twitter af Brasilíumanninum Malcom og umboðsmönnum hans.
Við hana skrifar hann að Malcom sé að funda með umboðsmönnunum til að klára skipti sín yfir til Arsenal.
Arsenal hugsar Malcom sem arftaka Alexis Sanchez sem er á förum frá Lundúnafélaginu á næstu dögum.

Malcom, sem er tvítugur, er metinn á um 40 milljónir punda en hann hefur verið að standa sig frábærlega með Bordeux í Frakklandi.
Þrír af umboðsmönnum Malcom hafa verið í London um helgina og hafa þeir verið duglegir að birta myndir af sér á samfélagsmiðlum til að staðfesta það. Ýtir það sterklega undir sögusagnir að sá brasilíski sé á leið til Arsenal að fylla skarð Alexis Sanchez.
⚠️ #Malcom (#Bordeaux) est avec son agent #Conarcini pour finaliser son transfert à #Arsenal ! pic.twitter.com/5vCV3cJgMk
— Romain Collet-Gaudin (@RomainCG75) January 14, 2018
Malcom’s agents were in London last night meeting with Arsenal officials.
— Brazil Football 🇧🇷 (@BrazilEdition) January 13, 2018
(via; @ChrisWheatley_) pic.twitter.com/aHcOECn4vN
Athugasemdir