Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. janúar 2018 15:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wenger: Við urðum að vinna þennan leik
Wenger sat upp í stúku þar sem hann var í leikbanni.
Wenger sat upp í stúku þar sem hann var í leikbanni.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var skiljanlega mjög svekktur eftir 2-1 tap gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Arsenal komst 1-0 yfir í upphafi seinni hálfleiksins en missti forystuna niður og tapaði að lokum eftir slæman kafla.

„Við vorum 1-0 yfir og skyndilega fengum við á okkur tvö mörk, við vitum ekki hvaðan þau komu," sagði Wenger.

„Þetta er virkilega ergjandi. Við verðum að líta á þetta þannig að við gerðum mistök sem við áttum ekki að gera."

„Lið sem er í fallbaráttu mun berjast og þú mátt ekki við því að gera mistök eftir einbeitingarleysi."

„Við urðum að vinna þennan leik. Ef þú lítur aftur á seinna mark Bournemouth, þá sérðu að við gerðum mörg mistök og það kostaði okkur," sagði Wenger.



Athugasemdir
banner
banner
banner