Síðastliðinn nóvember var meistaraflokkur Víkings Ólafsvík settur á laggirnar og hefur liðið nú æft saman í rúma tvo mánuði. Liðið er skipað ungum og efnilegum stelpum í bland við reyndari leikmenn sem hafa ákveðið að taka skóna niður af hillunni.
Nú er svo komið að liðið leitar að frekari liðsstyrk fyrir átök sumarsins en liðið mun leika í 1. deild kvenna á komandi leiktíð. Sem stendur er liðið án markmanns sökum þess að eini markvörður liðsins glímir við erfið meiðsli og ekki ljóst hvenær hún getur snúið aftur.
Mikill metnaður er til staðar og því um að ræða gott tækifæri fyrir stelpur sem vilja bæta sig sem knattspyrnukonur. Félagið skuldbindir sig til að útvega bæði atvinnu og húsnæði fyrir réttu einstaklingana.
Áhugasamir hvattir til að hafa samband við framkvæmdastjóra félagsins, Gunnar Örn Arnarson á netfönging [email protected] eða [email protected]
Athugasemdir