Botnlið Aston Villa fær Liverpool í heimsókn í öðrum leik dagsins í enska boltanum.
Liverpool féll niður í 11.sæti deildarinnar eftir úrslit gærdagsins en með sigri í dag getur liðið komist aftur upp í 8.sæti.
Aston Villa þarf nauðsynlega á sigri að halda þar sem liðið er langneðst á botni deildarinnar með 16 stig, átta stigum frá öruggu sæti.
Daniel Sturridge er í byrjunarliði Liverpool en Christian Benteke er á bekknum á sínum gamla heimavelli.
Byrjunarlið Aston Villa:Bunn, Richards, Okore, Lescott, Cissokho, Gana, Westwood, Bacouna, Veretout, Gil, Agbonlahor
Varamannabekkur:Guzan, Clark, Sinclair, Richardson, Hutton, Lyden, Davis.
Byrjunarlið Liverpool:Mignolet, Clyne, Toure, Sakho, Moreno, Can, Henderson, Milner, Coutinho, Firmino, Sturridge
Varamannabekkur:Ward, Benteke, Caulker, Origi, Ibe, Stewart, Flanagan
Athugasemdir