Diego Jóhannesson og félagar í Real Oviedo unnu góðan sigur á Tenerife í spænsku B-deildinni í knattspyrnu í dag.
Hann lék að sjálfsögðu allar 90. mínútur leiksins og þótti standa sig vel.
Hann lék að sjálfsögðu allar 90. mínútur leiksins og þótti standa sig vel.
Með sigrinum tylltu Diego og hans menn sér í 3. sæti deildarinnar en þeir hafa náð í 42 stig þegar 25 umferðir eru búnar í deildinni.
Liðið hefur komið mikið á óvart í vetur en Real Oviedo menn komu upp úr spænsku C deildinni í haust.
Diego sem á dögunum fékk tækifæri með íslenska landsliðinu hefur leikið gríðarlega vel með liðinu og er í algjöru lykilhlutverki.
Athugasemdir