Manchester City 1 - 2 Tottenham
0-1 Harry Kane ('53 , víti)
1-1 Kelechi Iheanacho ('74 )
1-2 Christian Eriksen ('83 )
0-1 Harry Kane ('53 , víti)
1-1 Kelechi Iheanacho ('74 )
1-2 Christian Eriksen ('83 )
Tottenham heldur góðu skriði í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar, en liðið vann glæsilegan 2-1 útisigur gegn Manchester City í dag.
Lærisveinar Manuel Pellegrini eru komnir í erfiða stöðu eftir töp gegn Leicester og Tottenham í titilbaráttunni, en Christian Eriksen tryggði þeim síðarnefndu sigurinn í dag.
Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en Harry Kane kom Tottenham yfir á 53. mínútu. Hinn ungi Kelechi Iheanacho jafnaði síðan metin rúmum 20 mínútum síðar.
Danski landsliðsmaðurinn Eriksen skoraði svo sigurmark Tottenham eftir skyndisókn og lokatölur 1-2.
Athugasemdir