Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 14. febrúar 2016 11:50
Arnar Geir Halldórsson
Faustino Asprilla hraunar yfir McClaren: Þekkir þú leikmennina?
Asprilla fagnar marki á St.James´ Park
Asprilla fagnar marki á St.James´ Park
Mynd: Getty Images
Kólumbíumaðurinn Faustino Asprilla er vægast sagt ósáttur með gang mála hjá sínu gamla félagi, Newcastle.

Hann horfði á liðið steinliggja fyrir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær og lét ekki sitt eftir liggja í umræðunni á Twitter meðan hann fylgdist með ósköpunum.

„Þetta er f*** grín. Hvernig ætlist þið til að halda ykkur í deildinni með svona frammistöðu? Hvaða leikskipulag er þetta herra McClaren? Þekkir þú leikmennina?” er meðal þess sem Asprilla lét flakka.

Asprilla spilaði 48 deildarleiki með Newcastle á árunum 1996-1998 og var í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum félagsins.









Athugasemdir
banner
banner
banner