Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Udinese sem beið ósigur gegn Bologna á heimavelli í ítölsku úrvalsdeildinni í dag.
Á sama tíma gerðu Sampdoria og Atalanta markalaust jafntefli á meðan Torino kom frábærlega til baka gegn Palermo eftir að hafa lent undir snemma leiks.
Einn leikur er svo á dagskrá ítalska boltans í kvöld þegar Fiorentina og Inter eigast við.
Úrslit og markaskorarar dagsins.

Sampdoria 0 - 0 Atalanta
Udinese 0 - 1 Bologna
0-1 Mattia Destro ('79 )
Palermo 1 - 3 Torino
1-0 Alberto Gilardino ('2 )
1-1 Ciro Immobile ('19 , víti)
1-2 Giancarlo Gonzalez ('31 , sjálfsmark)
1-3 Ciro Immobile ('69 )
Athugasemdir