Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 14. febrúar 2016 13:29
Arnar Geir Halldórsson
Jafnt hjá Íslandi og Póllandi
Andrea Rán gerði eina mark Íslands
Andrea Rán gerði eina mark Íslands
Mynd: Blikar TV
Pólland 1-1 Ísland
0-1 Andrea Rán Hauksdóttir (´9)
1-1 Nikola Kaletka (´17)
1-1 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Misnotað víti (´70)

Íslenska kvennalandsliðið gerði 1-1 jafntefli við það pólska í vináttuleik sem fram fór ytra í dag.

Andrea Rún Hauksdóttir kom Íslandi yfir á níundu mínútu en forystan entist stutt því heimakonur jöfnuðu átta mínútum síðar.

Fleiri urðu mörkin ekki en ekki var um opinberan leikdag að ræða og því var íslenski hópurinn einungis skipaður leikmönnum úr Pepsi-deildinni.

Næsta stóra verkefni landsliðsins er leikur gegn Hvít-Rússum í undankeppni EM en hann fer fram í Hvíta-Rússlandi þann 12.apríl næstkomandi.
Athugasemdir
banner
banner