Chelsea varð fyrir áfalli í gær þegar fyrirliði liðsins, John Terry þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í 5-1 sigri á Newcastle.
Terry var skipt af velli undir lok fyrri hálfleiks eftir að hafa fengið högg á vinstri löppina eftir baráttu við Aleksandar Mitrovic.
Guus Hiddink, stjóri Chelsea sagði eftir leikinn að hann vonaðist til að skoðanir myndu leiða í ljós að meiðslin væru minniháttar en ljóst er að Terry er tæpur fyrir leikinn gegn PSG í 16-liða úrslitum sem fram fer næstkomandi þriðjudag.
Chelsea missti Kurt Zouma í meiðsli um síðustu helgi en í gær brá Hiddink á það ráð að færa Branislav Ivanovic í miðvörðinn og setti Baba Rahman inn fyrir Terry.
Athugasemdir