banner
   sun 14. febrúar 2016 12:15
Arnar Geir Halldórsson
Willian: Mætum fullir sjálfstrausts til Parísar
Willian
Willian
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Willian segir sannfærandi sigur Chelsea á Newcastle í gær gefa liðinu aukinn kraft fyrir stórleikinn gegn PSG í Meistaradeildinni á þriðjudag.

Englandsmeistararnir skoruðu þrjú mörk á fyrstu 17.mínútum leiksins í gær og höfðu að lokum 5-1 sigur.

„Við kláruðum þá á 20 mínútum og í kjölfarið var auðveldara að spila. Nú erum við fullir sjálfstrausts fyrir leikinn í París.”

„PSG er með frábært lið og frábæra leikmenn en við munum fara þangað og reyna að vinna leikinn,”
segir Willian.

Willian hefur verið jafnbesti leikmaður Chelsea í vetur en félagar hans í sóknarleiknum hafa að undanförnu farið að líkjast sjálfum sér og þá sérstaklega Diego Costa.

„Diego er stórkostlegur leikmaður. Við höfum aldrei efast um hann eða hans hæfileika. Hann skorar svo mikið af mörkum. Ég lagði upp eitt fyrir hann og hann lagði upp fyrir mig. Ég nýt þess að spila með honum,” segir Willian.

Athugasemdir
banner
banner