Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 14. febrúar 2017 23:00
Þorsteinn Haukur Harðarson
Angel Di Maria: Ekki hægt að biðja um betri afmælisdag
Di Maria fagnar í kvöld.
Di Maria fagnar í kvöld.
Mynd: Getty Images
Angel Di Maria skoraði tvö mörk fyrir PSG í 4-0 sigri gegn Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld.

Di Maria átti afmæli í dag og óhætt að segja að hann hafi haldið upp á daginn með stæl.

„Þetta hefur verið sérstakur dagur að mörgu leyti. Það er ekki hægt að óska sér betri frammistöðu eða biðja um betri afmælisdag. Þetta var frábær leikur og við áttum skilið að vinna."

Þá segir hann markmið PSG í keppninni skýrt.

„Markmið okkar er að vinna Meistaradeildina og þessi sigur var liður í því. Þetta var leikur gegn einu besta liði heimsins en seinni leikurinn er eftir og við þurfum að spila jafnvel í honum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner