Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 14. febrúar 2017 17:00
Elvar Geir Magnússon
Bale ekki með
Bale getur ekki spilað gegn Napoli.
Bale getur ekki spilað gegn Napoli.
Mynd: Getty Images
Gareth Bale verður ekki með Real Madrid í leiknum gegn Napoli í Meistaradeildinni á morgun. Sá velski hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan í nóvember.

Hann er byrjaður aftur að æfa með liðinu en Zinedine Zidane telur að hann sé ekki orðinn nægilega frískur til að spila í fyrri leiknum gegn Napoli.

Toni Kroos er í hópnum ásamt stórstjörnum á borð við Cristiano Ronaldo, Alvaro Morata og Karim Benzema.

Hópur Real Madrid gegn Napoli: Navas, Kiko Casilla, Ruben Yanez, Carvajal, Pepe, Ramos, Varane, Nacho, Marcelo, Kroos, James, Casemiro, Kovacic, Modric, Isco, Cristiano Ronaldo, Benzema, Lucas Vazquez, Morata.
Athugasemdir
banner
banner
banner