Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 14. febrúar 2017 22:48
Þorsteinn Haukur Harðarson
Fótbolta.net mótið B-deild: KV tók 5. sætið
KV vann í kvöld
KV vann í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Njarðvík 2-3 KV
1-0 Bergþór Ingi Smárason (´4)
1-1 Viðar Þór Sigurðsson (´31)
1-2 Enok Ingþórsson (´35)
2-2 Arnór Björnsson (´55)
2-3 Jón Konráð Guðbergsson (´74)

Njarðvík og KV mættust í kvöld í leik um fimmta sætið í B-deild Fótbolta.net mótsins en leikið var í Reykjaneshöllini.

Bergþór Ingi Smárason kom Njarðvík yfir strax á 4. mínútu en KV náði forystunni þegar Viðar Þór Sigurðsson og Enok Ingþórsson skoruðu með skömmu millibili.

Þegar tíu mínútur voru liðnar af seinni hálfleik jafnaði Arnór Björnsson fyrir Njarðvík en tuttugu mínútum síðar tryggði Jón Konráð Guðbergsson KV sigurinn og um leið fimmta sæti mótsins.

Lokastaðan í B-deild
1. HK
2. Afturelding
3. Grótta
4. Selfoss
5. KV
6. Njarðvík
7. Haukar
8. Þróttur R.
Athugasemdir
banner
banner
banner