Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. febrúar 2017 14:15
Elvar Geir Magnússon
Fótboltafélag ræður húðflúrara í fulla vinnu
Ert þú húðflúrari sem ert að leita að vinnu?
Ert þú húðflúrari sem ert að leita að vinnu?
Mynd: Getty Images
Það er ýmislegt gert til að tryggja gleði í búningsklefanum en bandaríska MLS-deildarfélagið Philadelphia Union hefur farið nýja leið.

Félagið hefur auglýst eftir húðflúrara í fulla vinnu sem mun sjá um að smella tattúum á leikmenn liðsins.

Í auglýsingunni kemur fram að sá sem hljóti starfið eigi að starfa við að húðflúra leikmenn og starfslið auk þess sem stuðningsmenn eiga að geta nýtt sér þjónustu hans.

Talsmaður Philadelphia Union segir að mikil spenna sé fyrir þessu nýja stöðugildi. „Húðflúr fylgja þér að eilífu, eins og stuðningur við fótboltalið," segir í auglýsingunni.

Áhugavert.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner